Fyrir markaðsstofur
Tólf viðskiptavinir. Ein skýrsluvél.
Íslenskar markaðsstofur eyða þremur dögum í mánuði í að afrita tölur á milli viðmóta. Stofuaðgangur Metric tekur þá vinnu af borðinu og gefur þér um leið tölur sem viðskiptavinurinn getur ekki þrætt við.
Kannastu við þetta?
Þrjú vandamál sem allar stofur þekkja
Skýrslugerðin étur upp mánaðamótin
Þrír dagar á mánuði fara í að afrita tölur úr fimm viðmótum yfir í glærur. Sá tími er hvorki seljanlegur né skemmtilegur.
Viðskiptavinurinn hringir á undan þér
Hann sá í Meta að ROAS féll og hringir áður en þú náðir að taka eftir því. Sú staða veikir sambandið í hvert einasta skipti.
Erfitt að sanna virðið
Þegar tölurnar koma úr viðmóti Meta á stofan erfitt með að sýna hvað hún raunverulega breytti — og hvað hefði gerst án hennar.
Stofuaðgangur
Skýrslan skrifar sig sjálf, með þínu merki
Viðskiptavinurinn sér vinnu stofunnar, ekki verkfærið. Metric stendur í fótnótunni og hvergi annars staðar.
Eitt yfirlit yfir öll söfn
Öll söfn í einni töflu, raðað eftir fráviki. Þú sérð á tíu sekúndum hvar er kviknað í og hvar allt er í lagi.
Skýrslur með þínu vörumerki
Sjálfvirk mánaðarskýrsla með þínu merki, þínum litum og þínum athugasemdum. Send beint á viðskiptavininn eða til þín fyrst til yfirlestrar.
Frávikstilkynningar á undan viðskiptavininum
Metric lætur þig vita í Slack þegar herferð fer undir núllpunkt, áður en nokkur annar tekur eftir því.
Einn reikningur, ein tenging
Þú stýrir aðgangi, greiðslum og tengingum á einum stað. Nýtt safn er sett upp með okkur, ekki í einum smell.
- Velta
- 7,5 m.kr.
- MER
- 6,25×
- Framlegð
- 2,4 m.kr.
| Rás | Kostnaður | Sala | ROAS |
|---|---|---|---|
| Meta Ads | 648.000 kr. | 3.720.000 kr. | 5,74× |
| Google Ads | 396.000 kr. | 2.640.000 kr. | 6,67× |
| TikTok Ads | 156.000 kr. | 640.000 kr. | 4,10× |
Athugasemd ráðgjafa
Færsla fjárheimilda af breiðum markhópi yfir á endurmarkaðssetningu skilaði 19,6% hærri framlegð milli mánaða.
Unnið í Metric
Sýnidæmi um hvítmerkta mánaðarskýrslu
Endursölukjör
Afsláttur sem vex með safninu
Þú getur annaðhvort endurselt áskriftina með álagningu eða látið viðskiptavininn greiða beint og haldið stjórnandaaðgangi. Kjörin eru þau sömu í báðum tilvikum.
- 20%3–5 söfn
- 30%6–14 söfn
- 40%15 söfn eða fleiri
Stofur sem koma inn í lokaða beta fá fyrsta safnið frítt í þrjá mánuði og aðkomu að því hvernig stofuviðmótið er byggt.
Frí auglýsingaúttekt
Sendu okkur síðustu 30 daga.
Sjáðu hvað þeir kostuðu í alvöru.
Þú færð sundurliðaða skýrslu innan tveggja virkra daga: hvaða herferðir borguðu sig, hverjar ekki og hvað hefði mátt spara. Engin skuldbinding, ekkert greiðslukort og engin sölusímtöl nema þú biðjir um þau.
Eyðublað, svo lesaðgangur·Skýrsla innan tveggja virkra daga